144. löggjafarþing — 109. fundur,  20. maí 2015.

breytingartillögur við rammaáætlun.

[11:35]
Horfa

Helgi Hjörvar (Sf):

Virðulegur forseti hefur eiginlega tekið af mér ómakið við að þurfa að ræða fundarstjórn forseta með því að tilkynna að boðaður verði fundur þingflokksformanna. Mér gefst þá færi á að ræða málið ítarlega við forseta þegar af því verður en það væri ágætt að fá tímasetninguna á því.

Ég held þó að í ljósi þess að hæstv. umhverfisráðherra og ýmsir aðrir stjórnarliðar vilja leyna afstöðu sinni til þessa máls færi best á því að það yrði tekið af dagskrá og kæmi yfir höfuð ekki aftur á dagskrá svo þeir geti bara leynt varanlega afstöðu sinni í málinu.

Virðulegur forseti. Við höfum vakið athygli á því að meiri hlutinn er ekki neinn meiri hluti. Það er ekki bara þannig að hann hafi fengið minni hluta atkvæða í síðustu alþingiskosningum heldur var kjörsókn óhemjudræm í síðustu alþingiskosningum. Bjarni Benediktsson sem kallar sig meiri hluta hér hefur þannig stuðning þriðjungs kjósenda (Forseti hringir.) við báða stjórnarflokkana, samanlagt. Síðan þá hefur stór hluti þeirra yfirgefið þá þannig að þessi meiri hluti er ekki nema í besta falli fjórðungur kjósenda eða svo. Það er enginn meiri hluti og felur mönnum ekkert vald eða umboð.