144. löggjafarþing — 109. fundur, 20. maí 2015.
lengd þingfundar.
Forseti boðar ekki til fundar með þingflokksformönnum í neinu tilgangsleysi. Forseti gerir það í trausti þess að samræðurnar muni geta skilað okkur eitthvað áleiðis. Forseti hafði áður gert grein fyrir því að hann hefði lýst því yfir á fundi með þingflokksformönnum fyrr í vikunni að áform hans væri að gera tillögu um kvöldfund í kvöld.