144. löggjafarþing — 109. fundur,  20. maí 2015.

lengd þingfundar.

[12:11]
Horfa

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (Sf):

Hæstv. forseti. Ég lagði hér fram nokkrar spurningar um tilhögun fundarins og hvers vegna óskað væri eftir lengri þingfundi. Forseti virti mig ekki svars og ég harma það. Þetta voru einfaldar spurningar en kannski voru svörin of flókin, að ætlast til þess að hæstv. ríkisstjórn færi að taka einhverja ábyrgð á stjórn landsins og jafnvel að segja okkur frá hvað hún hygðist fyrir með allan vinnumarkaðinn í uppnámi. Í ljósi þess að hér er algjört ráðaleysi, stefnuleysi og að enginn virðist vita hvað eigi til bragðs að taka í þessum stjórnarmeirihluta get ég ekki stutt það að okkur sé ætlað að vera hér áframhaldandi eftir eðlileg lok þingfundar um áttaleytið.

Ég segi nei við þessari tillögu forseta, harma það að hann hafi ekki svarað einföldum spurningum mínum og harma það að meiri hlutinn sé að gera sér þennan óleik.