144. löggjafarþing — 109. fundur,  20. maí 2015.

störf þingsins.

[15:11]
Horfa

Árni Páll Árnason (Sf):

Virðulegi forseti. Hæstv. fjármálaráðherra, Bjarni Benediktsson, skrifaði grein í Morgunblaðið í morgun og lýsti þar stuðningi við þá hugmynd sem hefur verið til umræðu í stjórnarskrárnefnd að við mundum ná saman um breytingar á stjórnarskrá sem lagðar yrðu fyrir þjóðina í þjóðaratkvæði á næsta ári og mundu lúta að þjóðareign á auðlindum, ákvæði í stjórnarskrá um þjóðaratkvæðagreiðslur, um umhverfismál og um framsal fullveldis.

Ég fagna því að hæstv. fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins tali með þessum hætti. Það hefur verið áhugamál okkar í Samfylkingunni að halda áfram með stjórnarskrárbreytingar á grundvelli tillagna stjórnlagaráðs. Á nýlegum landsfundi Samfylkingarinnar var sérstaklega samþykkt að stefnt yrði að því að ná saman um akkúrat þessa þætti á næsta ári.

Það er líka athyglisvert að forustumenn Framsóknarflokksins hafa talað með skýrum hætti um að það þurfi alvöruþjóðareignarákvæði um þjóðareign á sameiginlegum auðlindum í tengslum við umræður um sjávarútvegsmál. Ég vil þó slá varnagla að þessu leyti. Þetta þarf að vera alvöruþjóðareignarákvæði. Þetta á ekki að vera almenn stefnuyfirlýsing sem ekkert þýðir og ákvæðið verður að skapa nýtt form eignarréttar og banna að slík eign sé seld eða látin varanlega af hendi og áskilja að greiðsla komi ávallt fyrir afnot af henni. Það er algert lágmark.

Síðan vil ég bæta því við sem við höfum lagt áherslu á í Samfylkingunni að við nýtum líka það sögulega tækifæri sem við höfum nú til að gera varanlegar breytingar á þingstörfunum og tryggja þriðjungi þingmanna rétt til að vísa málum í þjóðaratkvæði og breyta þá um leið þeirri hefð að vörn minni hluta á Alþingi felist í þessum ræðustóli hér. Við þurfum að búa til aðrar leiðir til að verja minni hlutann gegn ofríki meiri hlutans (Forseti hringir.) og það eru til betri leiðir eins og breytingar á stjórnarskrá. Ég vonast til að við getum náð saman þvert á flokka um framsæknar breytingar af þessum toga og okkur er ekki til setunnar boðið. Það er brýnt að leggja strax af stað.