störf þingsins.
Hæstv. forseti. Fyrr í þessari umræðu um störf þingsins tók hv. þm. Þorsteinn Sæmundsson til máls. Hann sagðist ekki hafa getað verið hérna síðustu daga en hann hefði fylgst með því sem hér var verið að ræða og lagði svo áherslu á að hann teldi þurfa bætta umræðuhefð í þinginu.
Hæstv. forseti. Mér fannst ræða hv. þingmanns bera þess merki að hann hefði ekki hlustað mjög grannt eftir því sem við vorum að segja hér því að við vorum einmitt að kalla eftir því, og höfum verið að kalla eftir því, bættri umræðuhefð, þ.e. að þau mál sem hingað koma til umræðu séu tilbúin og séu á þeim stað að við getum rætt þau svo eitthvert gagn sé að. Ég ætlaði einmitt að nota tækifærið hér til að fara yfir nokkur atriði við hv. þm. Þorstein Sæmundsson sem við höfum verið að tala um og þess vegna er ég glöð að sjá hann ganga í salinn. Þannig er nefnilega mál með vexti að nú á sér stað síðari umr. um breytingartillögu á rammanum og hæstv. umhverfisráðherra hefur boðað breytingartillögu við þetta mál. Hún hefur hins vegar ekki komið hingað inn. Þess vegna höfum við kallað eftir því að fá gögn málsins, að það liggi allt fyrir þannig að hægt sé að eiga einhverja vitiborna umræðu.
Það hefur hins vegar gengið illa. Því miður verð ég að segja að hér hefur skort upp á að hv. þingmenn stjórnarinnar (Forseti hringir.) hafi verið með á nótunum um hvað við erum að ræða. Ég vil því að lokum hrósa hv. þm. Páli Jóhanni Pálssyni þótt ég sé ósammála honum því að hann hefur setið hér og tekið þátt í umræðunni. Við bætum nefnilega umræðuhefðina með því að taka þátt.