144. löggjafarþing — 109. fundur,  20. maí 2015.

húsnæðismál.

[16:33]
Horfa

Jón Þór Ólafsson (P):

Herra forseti. Ástandið á leigumarkaði er ekkert sérstaklega gott. Ég er að skoða í kringum mig þessa dagana og eins og hv. þm. Birgitta Jónsdóttir benti á kostar tveggja herbergja íbúð mikið, ég var að skoða þannig íbúðir þótt við séum fjögur, en krakkarnir eru litlir og maður vill frekar búa þröngt en að þurfa að leggja út í óhemjumikinn kostnað, frekar búa þröngt um eitthvert skeið til að geta sparað til að geta síðan keypt eða haft svigrúm inn í framtíðina, safnað í sjóði og slíkt.

Það sem ég mundi vilja heyra betur frá ráðherranum er hvernig unnið er að þeim málum. Byggingarreglugerð hefur verið nefnd hérna og lögð hefur verið fram þingsályktunartillaga frá tveim framsóknarþingmönnum, Elsu Láru Arnardóttur og Haraldi Einarssyni, um að það skuli vera starfshópur á vegum ráðherra sem endurskoði lög og reglugerðir um nýbyggingar íbúðarhúsnæðis með það að markmiði að einfalda kerfið og lækka byggingarkostnað. Þetta er eitthvað sem ég held að ofboðslega margt ungt fólk vilji. Það vill fá meira sjálfræði um það hvernig híbýli það mundi sjálft vilja byggja og þetta mundi tryggja það. Sjálfur mundi ég vilja geta lóðað saman tvo gáma, gert þá vistlega. Ég er búinn að skoða margar útfærslur af þessu, fólk fer bara á netið og skoðar þetta, það er hægt að gera þetta ofboðslega huggulegt. Ég er búinn að skoða hvað það kostar að kaupa stóra glugga sem maður getur sett í eina hliðina og það væri hægt að gera þetta að ofboðslega vistlegum vistarverum en byggingarreglugerðin er einfaldlega of ósveigjanleg til að leyfa mér þetta. Svo er hægt að klæða þetta að utan o.s.frv. Þannig gæti maður verið kominn með góð híbýli sem síðan er hægt að stækka við því að það er alltaf hægt að bæta við. Maður getur byrjað smátt og bætt svo við. Þetta er alla vega minn draumur.

Annað varðandi leigumarkaðinn, það er að endurskoða samvinnufélagalöggjöfina til að auka félagafrelsi (Forseti hringir.) þannig að aðilar eins og Samtök leigjenda á Íslandi hafi meira svigrúm, þau vilja meira svigrúm varðandi félagarétt þannig að þau geti farið af stað með leigufélög.