144. löggjafarþing — 109. fundur,  20. maí 2015.

áframhald umræðu um rammaáætlun.

[16:48]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg):

Hæstv. forseti. Ég tek undir með þeim sem hafa lýst yfir vonbrigðum með að ekkert hafi komið út úr fundi þingflokksformanna með hæstv. forseta. Ég leyfði mér að vera svo bjartsýn að binda nokkrar vonir við að nú væri eitthvað að gerast, að verið væri að stíga einhver skref til að reyna að leysa þann hnút sem málið er komið í. Það eru mér mjög mikil vonbrigði ef lítið hefur gengið þar. Ég ætlaði satt að segja að gera eins og hv. þm. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir og spyrja út í formlega breytingartillögu við breytingartillöguna sem ég heyri að forseti segir að sé komin fram. Ég ætla að fara og kynna mér hana áður en lengra er haldið.