áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Hæstv. forseti. Já, þeirri sem hér stendur var kunnugt um það. Ég ætla að fá að vitna beint í þetta mat, með leyfi forseta:
„Að mati ráðuneytisins getur þingið, að teknu tilliti til laga nr. 48/2011, lagt til breytingar á flokkun þeirra virkjunarkosta sem tillagan tekur til, enda hafi kostirnir fengið umfjöllun verkefnisstjórnar í samræmi við ákvæði laganna.“ (Gripið fram í.)
Þessir kostir hafa allir fengið umfjöllun í faghópunum og svo ég endurtaki það, kostirnir í Þjórsá höfðu fengið umfjöllun, sagði formaður verkefnisstjórnar í greinargerð, en Skrokkalda var búin að fá umfjöllun í 2. áfanga rammaáætlunar.