144. löggjafarþing — 109. fundur,  20. maí 2015.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

244. mál
[17:38]
Horfa

Þórunn Egilsdóttir (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Sú sem hér stendur telur sig nú ekki hafa verið að stæra sig af neinu, heldur var ég einungis að fara yfir staðreyndir og rekja vinnuferlið og verklagið í þessu. Við erum með þingsályktunartillögu og Alþingi getur tekið þingsályktunartillögu fyrir og komið með breytingartillögu við hana. Það var einungis það sem hér var átt við.