áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Virðulegi forseti. Hér er karpað um lögin. Í minnisblaði umhverfisráðuneytisins segir að það komi fram í athugasemd um 3. gr. laga nr. 48/2011, um verndar- og orkunýtingaráætlun, rammaáætlun, að hún taki eingöngu til virkjunarkosta sem verkefnisstjórnin hefur fjallað um. Í greinargerð verkefnisstjórnarinnar sem fylgir upphaflegri þingsályktunartillögu frá ráðherra segir:
„Eins og lýst er hér að framan varð ljóst á haustmánuðum 2013 að verkefnisstjórn myndi eingöngu ná að fjalla faglega um virkjanakostina þrjá í Þjórsá innan þess skamma frests sem gefinn var […]“
Með öðrum orðum, verkefnisstjórnin fjallaði faglega um þessa þrjá virkjunarkosti í neðri Þjórsá alveg eins og kveðið er á um í lögunum að hægt sé að gera breytingar þar. Niðurstaða verkefnisstjórnarinnar er síðan sú og hún er rökstudd að ákveðin óvissa varðandi áhrif Hvammsvirkjunar á laxfiska hafi minnkað nægilega til að réttlætanlegt væri að færa virkjunina í nýtingarflokk á nýjan leik. Hins vegar hafi ekki dregið nægilega úr óvissu hvað varðar Holtavirkjun og Urriðafossvirkjun. Þessari niðurstöðu erum við bara ósammála, en verkefnisstjórnin fjallaði faglega um þessa þrjá virkjunarkosti. Hún komst að þessari niðurstöðu og samkvæmt lögum og skýringum (Forseti hringir.) í minnisblaði frá umhverfisráðuneytinu er sagt að það skuli eingöngu fjallað um þá kosti sem verkefnisstjórnin hefur fjallað um. (Forseti hringir.) Getur þetta verið eitthvað skýrara?