144. löggjafarþing — 109. fundur,  20. maí 2015.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

244. mál
[18:45]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það gerir þennan málatilbúnað varla skárri að búið sé að fjalla um þetta. Nú er mér sjálfum alveg sama hvort það var fyrri ríkisstjórn eða þessi ríkisstjórn sem fór til verkefnisstjórnar með það verkefni að skoða þessa kosti og sérstaklega þessa þætti virkjunarkostanna. Mér er alveg sama hvort það var fyrrverandi ráðherra eða núverandi ráðherra, en vissulega hjálpar það ekki málflutningi hv. þm. Jóns Gunnarssonar að það hafi verið ráðherra Framsóknarflokksins í núverandi hæstv. ríkisstjórn sem beindi þessum tilmælum til verkefnisstjórnar.

Það undirstrikar enn og aftur að við erum ekki raunverulega hérna til að rökræða og reyna að sannfæra hvert annað um þessa kosti, þegar allt kemur til alls. Það virðist alla vega ekki vera tilætlan hv. þm. Jóns Gunnarssonar, nema hann telji okkur öll vera fífl.