144. löggjafarþing — 109. fundur,  20. maí 2015.

um fundarstjórn.

[20:05]
Horfa

Steingrímur J. Sigfússon (Vg):

Frú forseti. Það er eðlilegt að spurt sé þegar við siglum inn í kvöldið hversu lengi standi til að halda þessu ráðaleysi áfram. Það sem hér er að gerast er algerlega í boði stjórnarmeirihlutans, hann á það skuldlaust. Allt frá því að tillögu hæstv. fyrrverandi umhverfisráðherra var í ágreiningi vísað inn í atvinnuveganefnd í staðinn fyrir umhverfis- og skipulagsnefnd, allt frá því að fréttist af breytingartillöguáformum hv. þm. Jóns Gunnarssonar og í gegnum allt þetta ferli, hefur þetta verið í boði stjórnarmeirihlutans. Þetta eru heimatilbúin vandræði sem stjórnarmeirihlutinn ber einn óskipta ábyrgð á. Síðan er sá málatilbúnaður í þvílíkum tætlum — samanber það að nú eru menn að plokka eina og eina virkjun út úr fyrri hugmyndum sínum um það sem átti að troða inn, — að það hálfa væri nóg.

Ég held að ríkisstjórnin og meiri hluti hennar verði að fara að átta sig á því að stjórnarandstaðan er staðráðin í að standa vörð um rammaáætlun, að standa vörð um náttúru Íslands og láta ekki bjóða þingi og þjóð þessi vinnubrögð. (Forseti hringir.) Við vísum til hagsmuna ferðaþjónustunnar, samanber umsögn hennar, (Forseti hringir.) o.s.frv. Ríkisstjórnin og meiri hluti hennar á hér við ofurefli að etja. Þessi málatilbúnaður nær hvergi (Forseti hringir.) stuðningi eða hljómgrunni og er fallinn um sjálfan sig. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)