144. löggjafarþing — 109. fundur,  20. maí 2015.

um fundarstjórn.

[20:06]
Horfa

Katrín Júlíusdóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Mér finnst ástæða til að þingmenn staldri nú aðeins við í ljósi þess að í gær tilkynnti forsætisráðherra okkur að ástæðan fyrir því að við værum hér að ræða rammann, forgangsmál ríkisstjórnarinnar, væri sú að hann væri lykill að lausn kjaradeilna á vinnumarkaði. Í kvöld eru fréttir á vef Ríkisútvarpsins sem segja að rammaáætlun hafi aldrei verið nefnd í yfirstandandi kjaraviðræðum, samkvæmt Hannes G. Sigurðssyni, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, telur breytingar á rammaáætlun ekki tengjast viðræðunum eða vera sérstakt innlegg í þær.

Virðulegi forseti. Það hefur verið hrópað „forsendubrestur“ af minna tilefni. Forsendur þessarar umræðu eru algjörlega kolfallnar. Ef þetta er skilningur hæstv. forsætisráðherra á þeirri alvarlegu stöðu sem er á vinnumarkaði þá segi ég nú bara: Guð blessi Ísland.