áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Virðulegi forseti. Ég er ekki viss hvort ég eigi að fara út í þessa umræðu, hvort þingmenn séu búnir að kynna sér hlutina nægilega vel og eitthvað (Gripið fram í.) svoleiðis. Ég hef heyrt sjónarmið þingmannsins varðandi þá hluti. Ég verð bara að segja eins og er að ég hlusta ekkert endilega á þennan þingmann frekar en annan, ég reyni hins vegar að hlusta á alla (Gripið fram í.) og taka svo sjálfstæða ákvörðun. Við erum einfaldlega ekki sammála um túlkunina á lögunum, til dæmis varðandi það hvort nefndin megi bara breyta tillögunni um Hvammsvirkjun. Ég finn því ekki stað í lögunum og ég fór mjög „grundigt“ ofan í lögin og greinargerðina og nefndarálitið. Hvernig þá? Bara Hvammsvirkjun, þú átt að breyta því, hvernig? Væntanlega bara að henda því út, það er eina leiðin ef á að breyta einhverju. (Gripið fram í.) Það er verið að leggja til að flytja kost úr biðflokki í nýtingu og ef þetta er eins og hv. þingmaður segir, ef þeir vildu breyta, þá er bara að gera ekki neitt. Ég held (Forseti hringir.) að það sé ekki þannig. Ég hef bara aðrar skoðanir á því.