144. löggjafarþing — 109. fundur,  20. maí 2015.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

244. mál
[21:11]
Horfa

Höskuldur Þórhallsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Fyrst tel ég að við eigum að halda dampi í þinginu og reyna að afgreiða eins mörg góð mál og hægt er. Ég veit að það eru skiptar skoðanir um ágæti þessa máls. Ég tel mikilvægt að það fari í gegn. Að öðru leyti vil ég sem minnst tjá mig um þær kjaraviðræður sem eiga sér stað, en tek undir áhyggjur annarra þingmanna um það ástand og vona að það leysist á einn eða annan hátt.

Varðandi fyrri spurninguna, ef ég náði henni, ég veit að þingmaðurinn var að reyna að vera skýr, þá held ég að það liggi fyrir að tillögur hv. formanns atvinnuveganefndar hafi ekki verið ræddar í þingflokki Framsóknarflokksins. Ég held að það hafi komið fram í fjölmiðlum, ég held að það hafi komið fram í þingsal, en við höfum að sjálfsögðu verið mjög vel upplýst af fulltrúum okkar í atvinnuveganefnd. Ég (Forseti hringir.) get ekki betur séð en þau hafi reynt að standa sig eins vel og þau geta.