áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Virðulegi forseti. Ég rakti áðan álit eða umsögn ASÍ og ég vildi með því varpa ljósi á það að eins ósáttir og þeir eru núna með málsmeðferðina þá voru þeir það einnig.
Ég er hins vegar þeirrar skoðunar eftir að hafa kynnt mér lögin að bæði ráðherra og nefndin hafi heimild til þess að breyta. Það er mitt mat eftir að hafa kynnt mér lögin ítarlega sem við höfum hér til umfjöllunar. Ég var ekki sáttur við þá gjörð á síðasta kjörtímabili, en ég minnist þess ekki að ég hafi sérstaklega fett fingur út í hvernig það var gert.
Ég hef barist fyrir því hér að menn reyni að ná sáttum um lög og annað. Þessari andsvaralotu er að (Forseti hringir.) ljúka og ég vil ljúka henni á þeim orðum að vonandi, hvað sem þessu máli líður, náum við sátt um að lagfæra lagaumgjörðina (Forseti hringir.) þannig að við þurfum ekki að standa í þessu stappi í sölum Alþingis.