áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Virðulegi forseti. Ég hef áhyggjur af stöðu umhverfismála á Íslandi. Ég hef áhyggjur af því að staða umhverfisráðherra á Íslandi er mjög veik og hún býr ekki við efnislegan og málefnalegan stuðning við sinn málflutning. Ég hef áhyggjur af því að formaður umhverfisnefndar, formaður náttúruverndarnefndar Alþingis, hefur það helst til málanna að leggja að kvarta yfir málfrelsi þingmanna og kvarta yfir því að þingmenn séu að tala. (HöskÞ: Nei.) Það að þingmenn hafa ítrekað röksemdir sínar fyrir því að þetta mál eigi að fara af dagskrá sem eru sumar hverjar efnislegar, gefur hv. þingmanni, formanni náttúruverndarnefndar þingsins, tilefni til þess að kvarta yfir því að þingmennirnir tali. (HöskÞ: Nei.) Og þessi sami þingmaður styður meiri hluta atvinnuveganefndar (Forseti hringir.) og studdi það líka að málið færi þangað en ekki til hans eigin nefndar, vegna þess að hann stendur ekki einu sinni vörð um þann málaflokk. (Gripið fram í.) Hversu dapurt.