áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Frú forseti. Út af orðum síðasta hv. ræðumanns, ég ætlaði nú ekki að fara í efnislega umræðu hér, þá verður að benda á það í minnisblaði umhverfis- og auðlindaráðuneytis þar sem meðal annars er rætt um Hagavatn og Skrokköldu, að það sé ekki tækt að nefndin geri tillögu um þessa tvo kosti, Hagavatn og Skrokköldu, bara svo því sé haldið til haga.
En ég kom hingað upp til að frábiðja mér það að ég sé ekki að ræða hér fundarstjórn forseta. Það sem ég gerði áðan í mínu máli var að ræða það að það varðar auðvitað fundarstjórn forseta ef við erum að ræða mál sem er vanreifað með þeim hætti sem hér hefur verið rakið í efnislegum ræðum, vanreifað. Hér er ágreiningur, ekki bara um lagalegt gildi tillögunnar. Fyrst og síðast snýst þessi ágreiningur um vinnubrögð Alþingis, sem ég hélt satt að segja að við hefðum öll samþykkt að bæta þar úr. Hér liggur fyrir fullkomlega skýr afstaða um að eðlilegt væri að bíða eftir niðurstöðu verkefnisstjórnar um rammaáætlun áður en Alþingi tekur málið til umræðu. Þetta snýst um vinnubrögð og það tengist fundarstjórn forseta, frú forseti, hvaða mál eru tekin á dagskrá og hvort það sé hreinlega eðlilegt að hvaða mál (Forseti hringir.) sem er séu tekin á dagskrá þingsins þó þau séu vanreifuð með þessum hætti. Þetta er fundarstjórn forseta, frú forseti.