144. löggjafarþing — 109. fundur,  20. maí 2015.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

244. mál
[22:24]
Horfa

Steingrímur J. Sigfússon (Vg) (andsvar):

Ég held að það orðalag sem þarna er vitnað til og sú niðurstaða sjálf að verkefnisstjórn umbeðin af ráðherra að hraða skoðun á ekki síst þessum kostum sé skýrt. Verkefnisstjórn kemst samt að þeirri niðurstöðu að það sé ekki tímabært að hrófla við flokkun kostanna, að þeir skuli standa áfram í biðflokki. Það talar skýrar en nokkuð annað fyrir verkefnisstjórn. Ég get alveg viðurkennt hér að ég var ánægður, m.a. vegna þess að þar fannst mér og finnst hafa verið sleginn niður málflutningurinn frá síðasta kjörtímabili um að það hafi ekki verið rétt ákvörðun að færa neðri hluta Þjórsár í biðflokk. Verkefnisstjórnin sem nú starfar hefur í reynd fallist á og staðfest að það vantar frekari rannsóknir og upplýsingar um neðri hluta Þjórsár og að það er ekki tímabært að ákveða endanlega flokkun þeirra. Það kristallast í þessu ferli og er staðfest algerlega í því hvernig verkefnisstjórnin skilar af sér til ráðherra og það sem meira er, hæstv. þáverandi umhverfisráðherra var sammála (Forseti hringir.) og lagði Hvammsvirkjun eina til.