áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Herra forseti. Þetta er alveg gild spurning og ætti eftir því sem mögulegt er að skýra hlutverkaskiptin í þessu. Mér dettur til dæmis strax í hug þetta með að það geti ekki leikið vafi á því eða verið neitt túlkunaratriði hvort hinu faglega ferli sé lokið eða ekki. Það er vandasamt að búa við þá túlkun að það sé nóg að verkefnisstjórn hafi aðeins litið á virkjun til að hægt sé að halda því fram að fagleg skoðun hafi átt sér stað. Þó að verkefnisstjórnin hafi alls ekki lokið störfum gætum við bara gert það skýrt í lögunum að það skuli ekki teljast fullnægjandi fyrr en faghópar hafa unnið undirbúningsvinnuna og verkefnisstjórn sjálf komist að endanlegri niðurstöðu og þá sé hinu faglega umfjöllunarferli lokið og hægt að snúa sér að flokkun.
Ég get alveg tekið undir það að vitaskuld er á góðum tíma rétt að fara yfir það hvort betrumbæta megi (Forseti hringir.) og styrkja ákveðna þætti af þessu tagi. Kosturinn við stöðuna nú til að nefna einhvern er sá að við höfum tíma. Það er engin tímapressa sem rekur okkur til að hroða þessum málatilbúnaði í gegn.