144. löggjafarþing — 109. fundur,  20. maí 2015.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

244. mál
[22:46]
Horfa

Svandís Svavarsdóttir (Vg) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Ég tek undir það sem hér hefur verið sagt. Það virðist vera býsna greið leið fyrir hv. þingmenn meiri hluta í þinginu þegar þeir þurfa að greiða atkvæði um lengd þingfunda og annað sem brennur á meiri hlutanum að koma í gegnum þingið en svo þegar kemur að því að sinna þingstörfum eru þeir bara heima hjá sér eða einhvers staðar annars staðar. Ég spyr virðulegan forseta: Hvar eru þingmenn eins og til að mynda Birgir Ármannsson? Hvar er hann? Hvar er hv. þm. Elsa Lára Arnardóttir? Hvar er hv. þm. Haraldur Benediktsson sem er í meiri hluta atvinnuveganefndar, er hann hérna í húsinu? Það væri áhugavert ef hann tæki þátt í umræðunum. Hvar er hv. þm. Vilhjálmur Árnason sem er í umhverfisnefnd? Hvar er hv. þm. Líneik Anna Sævarsdóttir sem er líka í umhverfisnefnd og greiddi atkvæði með kvöldfundi? Ætlar hún ekki að taka þátt í umræðunni á kvöldfundi? Hvar er Guðlaugur Þór Þórðarson, sérstakur talsmaður í hverjum málaflokknum á fætur öðrum þegar kemur að því (Forseti hringir.) að ræða mál sem hann vill að séu rædd hér fram eftir kvöldi? Hvar eru þessir þingmenn og allnokkrir fleiri?