áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Herra forseti. Ég fer fram á það að þeir 24 þingmenn sem greiddu atkvæði með kvöldfundi hér en upplýst er að séu fjarverandi verði látnir vita, hringt í þá alla, hvern einn og einasta, 23 stjórnarþingmenn og hv. þm. Össur Skarphéðinsson því að mér til mikillar undrunar sagði hann í atkvæðaskýringu að hann ætlaði að styðja kvöldfund. Við hefðum þá mátt eiga von á honum. Þessa þingmenn þarf einfaldlega að láta vita að nú sé þessi kvöldfundur sem þeir báðu um og að viðveru þeirra sé óskað, (BirgJ: Hringja bara í þá.) hringja í þá alla saman, alveg sjálfsagt mál og gleðja þá með því að gera þeim ljóst að þeim hafi orðið að ósk sinni, að hér standi kvöldfundur. Það er reyndar vonandi bara kvöldfundur og ég spyr hæstv. forseta hvort það sé ekki öruggt að hér sé bara kvöldfundur. Nefndafundir eru boðaðir kl. 8 eða 8.30 í fyrramálið og þannig höfum við keyrt og komum kannski til með að keyra á morgun líka og mér finnst hóflegt að vinnutíminn fari þá ekki mikið yfir 16 tíma á dag marga daga í röð, af skiljanlegum ástæðum.
Svo vek ég athygli forseta á því að auðvitað er það mikið kostaboð til meiri hlutans að taka þetta mál (Forseti hringir.) af dagskrá vegna þess að málstaður hans versnar dag frá degi. Hann er alltaf að hrynja meir og meir til grunna þannig að það er meiri hlutanum sjálfum fyrir verstu að framlengja þetta dauðastríð. Málstaðurinn er alltaf að versna.