144. löggjafarþing — 109. fundur,  20. maí 2015.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

244. mál
[22:58]
Horfa

Frsm. meiri hluta atvinnuvn. (Jón Gunnarsson) (S) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Margir eru á mælendaskrá í þessu máli og full ástæða til að halda áfram eitthvað inn í nóttina, það er alvanalegt þegar kemur fram á þennan tíma í þingstörfunum að það sé haldið svolítið inn í nóttina. Hv. þm. Össur Skarphéðinsson sagði að allir þingmenn hefðu gott af því að sjá sólina byrja að birta upp daginn þegar kæmi fram á þennan tíma og ég held að við ættum (Gripið fram í.) að halda okkur við það að halda vel áfram og reyna að láta ganga svolítið á þennan langa lista sem hér vill ræða þessi mál málefnalega.

Ég vil nú segja út af því sem hér hefur verið sagt, að málstaður meiri hlutans sé alltaf að versna, að ég tel hann vera að styrkjast öllum stundum. Þau helstu lögfræðiálit sem hv. þingmenn minni hlutans hafa stuðst við halda engum rökum í þessu, þau styðja það einmitt mjög dyggilega (Forseti hringir.) og greinilega að meiri hlutinn hefur fullar lagaheimildir til að fara þessa leið. Það er ekki í neinni andstöðu við lög um rammaáætlun og þess vegna ættum við að geta tekið það ágreiningsefni út af borðinu og haldið áfram annarri málefnalegri umræðu.