144. löggjafarþing — 109. fundur,  20. maí 2015.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

244. mál
[23:01]
Horfa

Birgitta Jónsdóttir (P) (um fundarstjórn):

Jæja, þá heldur leikhús fáránleikans áfram. Ég kallaði þetta leikhús fáránleikans líka á síðasta kjörtímabili þegar við vorum komin í svona ógöngur eins og við erum í núna þar sem er enginn sáttatónn og enginn vilji til að leysa úr erfiðum hnútum.

Eins og ég sagði áðan, forseti, höfum við ekki neitt lært. Við ætluðum okkur svo mikla og stóra hluti eftir hrun, við ætluðum að læra af því, en þingið er núna í gíslingu meiri hluta atvinnuveganefndar. Það er í gíslingu út af breytingartillögu, þetta er fáheyrt, þetta hefur aldrei verið gert áður og þetta er mjög slæmt fordæmi þar sem verið er að nýta þá stöðu að það var í raun enginn ráðherra í ráðuneyti umhverfismála um langa hríð. Núna er verið að misbeita stöðunni (Forseti hringir.) á meðan ráðherra er að setja sig inn í málaflokkinn. Það hefur komið fram hjá hæstv. ráðherra umhverfismála að hún er ekki fylgjandi þessari breytingartillögu.