144. löggjafarþing — 109. fundur,  20. maí 2015.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

244. mál
[23:37]
Horfa

Katrín Júlíusdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir áhugaverðan lestur. Ég get kannski ekki sagt að ég sé endilega sammála öllu sem kom fram í því sem þar var lesið og já, ég skal segja það að mér sárnaði nú pínulítið fyrir hönd Húsvíkinga, frænda minna og vina, sem þar var sagt. En ég ætla ekki að ræða það við hv. þingmann heldur annað.

Ég er mikill aðdáandi þess að menn reyni að vita hvert þeir séu að fara með samfélagið ef þeir eru í ríkisstjórn og hvað þá fara fyrir henni. Hæstv. forsætisráðherra hefur sagt að þetta mál sé lykillinn að lausn kjaradeilu á vinnumarkaði. Síðan hafa hins vegar komið fram bæði aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og forseti ASÍ, Gylfi Arnbjörnsson, og sagt að þetta sé rangt, þ.e. að ramminn hafi aldrei komið upp í viðræðum um bætt kjör á vinnumarkaði, þannig að eitthvað hefur samfélagið breyst frá þeim tíma sem hv. þingmaður er kannski að lýsa, vonandi, að menn líta ekki svo á að það sé lykillinn að lausnum að ráðast í virkjanir, heldur sjá menn að þar eru allt önnur öfl að verki og skipta máli til sjálfbærs vaxtar til langrar framtíðar heldur en einstakar stórframkvæmdir sem skila hlutfallslega fáum störfum, þannig að það er vel.

Forsætisráðherra er hins vegar enn þá þessarar skoðunar, þ.e. að þetta sé lykillinn. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvaðan hún telji að hann hafi þessar hugmyndir fyrst það er enginn annar sem tekur undir þetta, og hvort hún þekki til þess að slík sjónarmið hafi verið uppi annars staðar en við hin höfum kannski tekið eftir og hvar hæstv. forsætisráðherra gæti hafa fengið þá flugu í höfuðið að þetta væri lykillinn að þeirri erfiðu deilu sem við horfum núna upp á.