144. löggjafarþing — 109. fundur,  20. maí 2015.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

244. mál
[23:41]
Horfa

Katrín Júlíusdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það eru dólgar víða og það er oft talað um flugdólga. Það eru líka til þingfundadólgar og þeir eru hér stundum í hliðarsölum.

Virðulegi forseti. Mér finnst áhugaverð sú mynd sem er teiknuð upp í greininni sem hv. þingmaður las upp hér áðan, vegna þess að þetta er að mörgu leyti svo rétt. Við erum að mínu mati komin töluvert frá þessu, ekki alla leið og ekki nógu langt, en menn hafa áttað sig á því á undanförum árum að töfralausnir eru ekki til. Vöxtur samfélaga verður ekki til með svona stórum einstaka framkvæmdum sem koma utan frá, heldur er hinn innri vöxtur miklu stabílli og skilar meiru til lengri tíma. Margt af því sem við höfum horft til hingað til og skyndilausnirnar í pólitíkinni hafa verið mjög dýru verði keyptar og við erum komin það langt að við eigum ekkert svo mikið af raforkukostum eftir, þ.e. í vatnsafli og jarðvarma. (Forseti hringir.) Og þess vegna skiptir svo miklu máli að við vöndum vel til verka þegar við tökum ákvarðanir um með hvaða hætti við ætlum að nýta það sem eftir er.