áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Forseti. Ég þarf nú varla að minna á það en komið hefur ítrekað fram í ræðum og ritum víðs vegar um landið að fólk upplifir núverandi ríkisstjórn sem ríkisstjórn ríka fólksins, af því að hagur þeirra sem hafa það best hefur verið tryggður á kostnað þeirra sem eiga að erfa landið og þeirra sem búa við mjög bág kjör í dag.
Persónulega er ég ekki hlynnt þessum virkjunarkostum. Ég mun að sjálfsögðu hlíta niðurstöðu fagnefndarinnar. Ég vil helst ekki virkja neinn af þessum stöðum en ég mun hlíta niðurstöðu fagnefndarinnar. Það er það sem meiri hluti atvinnuveganefndar á að gera. Hann á að bíða eftir að hinu faglega ferli sé lokið. Það er mín skoðun. Frá henni mun ég ekki hverfa.