144. löggjafarþing — 109. fundur,  20. maí 2015.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

244. mál
[23:59]
Horfa

Forseti (Silja Dögg Gunnarsdóttir):

Forseta hefur borist eftirfarandi dagskrártillaga og eftirfarandi bréf:

Við undirrituð gerum það að tillögu okkar, í samræmi við 1. mgr. 77. gr. þingskapalaga, að dagskrá næsta fundar verði svohljóðandi:

1. Óundirbúnar fyrirspurnir.

2. Sérstakar umræður um markaðslausnir á sjávarútvegi. Málshefjandi er Björt Ólafsdóttir. Til andsvara verður sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra Sigurður Ingi Jóhannsson.

3. Staðan á vinnumarkaði. Munnleg skýrsla forsætisráðherra.

4. Raforkulög (kerfisáætlun, EES-reglur), stjórnarfrumvarp iðnaðar- og viðskiptaráðherra, 305. mál, þskj. 1005, nál. 1091 og 1226, brtt. 1092 og 1227, 3. umr.

5. Stefna stjórnvalda um lagningu raflína, stjórnartillaga, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, 321. mál, þskj. 392, nál. 973 og 986, frhnál. 1228. Framhald síðari umr.

Við óskum eftir því að þessi tillaga verði borin upp til afgreiðslu í samræmi við áðurnefnda grein þingskapa.

Undir þetta bréf rita Jón Þór Ólafsson, Katrín Júlíusdóttir, Lilja Rafney Magnúsdóttir og Björt Ólafsdóttir.

Þessi tillaga verður borin upp í upphafi þingfundar á morgun.