áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Frú forseti. Það stóð hér fundur í gærkvöldi til langleiðina 12 á miðnætti. Ég hóf störf á þingi í morgun klukkan átta á fundi í efnahags- og viðskiptanefnd og hef verið hér sleitulaust síðan. Það eru sem sagt rúmir 16 tímar. Það telst alveg fullsæmilegur vinnudagur, sérstaklega ef þeir fara margir svoleiðis saman í röð. Ég er að vísu vanur törnum og löngum vinnulotum og kveinka mér ekkert sérstaklega undan því, en mín reynsla er líka sú að ef á að vinna mikið og afkasta mikið, t.d. halda út jafnvel vikum saman með 16 tíma vinnutarnir á sólarhring, þá þurfi maður að sofa eitthvað þar á milli og fimm, sex tímar séu eiginlega lágmarkið, jafnvel þótt maður sé þokkalega hraustur. Þetta er mín reynsla, frú forseti. Þess vegna vil ég spyrja hæstv. forseta í fyllstu vinsemd gagnvart okkur sem eigum svo enn að mæta snemma í fyrramálið: Er þetta ekki að verða gott? Er ekki hyggilegt að fara að láta (Forseti hringir.) nótt sem nemur?