áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Virðulegi forseti. Það er þannig með þetta mál að það stendur fast. Er eitthvað í framvindunni sem forseti áttar sig ekki á? Áttar virðulegur forseti sig ekki á því að það eru 18 manns á mælendaskrá og þeir verða 18 áfram? Átta menn sig ekki á því að stjórnarandstaðan er algjörlega einhuga í því að líða ekki breytingartillögu meiri hlutans? Er eitthvað óljóst um það? Og breytir það að halda eina ræðu í viðbót hér í nótt einhverju um þann skilning á stöðu málsins? Hvað er það sem virðulegur forseti áttar sig ekki á í þeirri stöðu sem upp er komin?
Ég árétta að það er mikilvægt að forseti endurskoði áform sín um dagskrá morgundagsins til þess að við spólum okkur ekki enn þá fastar ofan í hjólförin og getum reynt að ná einhverjum fókus á lausnir (Forseti hringir.) í þessu máli. Þetta stendur algjörlega fast og það er algjörlega á ábyrgð forseta og meiri hluta þingsins. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)