áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Virðulegi forseti. Ég þakka forseta líka fyrir svarið sem kom þó seint væri.
Það er aldrei gaman að halda ræður þegar komið er svona langt fram á kvöldið og ég hef kvartað yfir því ásamt fleiri þingmönnum að þurfa að gera það. Ég vil samþingmanni mínum Willum Þór Þórssyni það ekki að tala hér inn í nóttina. Mér finnst skynsamlegra að við tölum svona að mestu að minnsta kosti meðan bjart er og það er ekki komin sú sumarnótt að enn þá sé bjart úti. Þótt einhver hafi hér talað um að það væri gott að sjá sólarupprásina, þá mundi ég vilja gera það annars staðar en hér.
Ég tek undir að það er í rauninni málinu ekki til framdráttar og algjör óþarfi að við verðum hér fram á nótt, klukkan verður sjálfsagt að verða hálftvö ef fram heldur sem horfir og hæstv. forseti heldur fast í að hér verði haldin ein ræðan enn. Mér finnst það ekki málinu til bóta. Ég held að það sé alveg rétt að það sé skynsamlegt að fólk fari að hvíla sig. Við eigum mörg hver að mæta á fundi eldsnemma (Forseti hringir.) í fyrramálið og það er ekki hægt að segja fólki að fara bara heim að sofa, ef það vill vera viðstatt umræðuna sem við á, þýðir það að við fáum örfáa klukkutíma í svefn.