áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Ég hefði gjarnan viljað heyra hana á dagvinnutíma en ég læt mér það nægja að hlýða á hana þegar klukkan er að verða eitt.
Hv. þingmaður talaði um mikilvægi sáttar og talaði um að hann væri eindregið fylgjandi því ferli sem hefði verið markað með lögum um rammaáætlun. Hann sagði líka að þó virtust uppi vafamál um hvernig ætti að túlka lögin, hugsanlega þyrfti að sníða vankanta af lögunum. Gott og vel. Telur hv. þingmaður að það sé rétt röð atburða að Alþingi taki til afgreiðslu tillögu um fjóra virkjunarkosti sem verkefnisstjórnin sem núna er starfandi á að fjalla um, ekki verkefnisstjórn í 2. áfanga, heldur sú verkefnisstjórn sem núna er starfandi, og samkvæmt lögum um rammaáætlun á að fjalla um þá virkjunarkosti sem henni hafi verið sendir? Telur hv. þingmaður að það sé rétt röð að við afgreiðum tillögu um hugsanlegar virkjanir sem verkefnisstjórn sem núna er starfandi hefur ekki lokið umfjöllun um á sama tíma og hv. þingmaður viðrar hér þær áhyggjur sínar að ræða þurfi þennan mismunandi skilning á lögum? Telur hann að það sé rétt röð atburða?
Í öðru lagi langar mig að spyrja hv. þingmann hvað það sé sem ýti svo á þennan asagang í málinu, fyrir hvaða verkefni er verið að virkja? Hér hefur verið sagt: Það eru fjöldamörg verkefni sem bíða. En enginn hefur nefnt þessi verkefni beinlínis. Það eru vangaveltur uppi um að eftir eigi að afla orku í eitt af fjórum kísilverum, annars staðar er orkan tryggð. Hvaða verkefni eru það sem bíða þannig að fara þurfi fram með svo miklum hraða að ekki megi bíða þar til verkefnisstjórn lýkur vinnu sinni 2016?