144. löggjafarþing — 109. fundur,  21. maí 2015.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

244. mál
[01:10]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég ber fulla virðingu fyrir því. Ég er ekki kominn lengra sjálfur. Það finnst mér nákvæmlega vandinn við það að afgreiða málið með þessari breytingartillögu á þessum tímapunkti. Ef það yrði samþykkt undir þessum kringumstæðum og með hliðsjón af öllum þeim efnisatriðum sem hafa komið fram, bæði efnisatriðum varðandi þingtækið og hvernig umhverfisráðuneytið lítur á þetta, hvernig hugsanlega kærur yrðu o.s.frv. og auðvitað sem bara pólitísk sátt um rammann, þá óttast ég það og leyfi mér hreinlega að fullyrða að allar tilraunir sem við munum reyna að koma að í framtíðinni, sem mér sýnist við hv. þingmaður báðir vilja, verða miklu erfiðari, ef ekki hreinlega ómögulegar pólitískt, alla vega á þessu kjörtímabili og eflaust hinu næsta ef þetta nær í gegn núna vegna þess að við erum í síðari umræðu og breytingartillögurnar eru komnar fram og það virðist vera meiri hluti fyrir þeim. Menn virðast vera alveg reiðubúnir að beita meirihlutavaldi og gorta sig vel af því.

Mér finnst þessi tillaga í sjálfu sér svolítið standa í vegi fyrir þeirri(Forseti hringir.) viðleitni sem mér sýnist hv. þingmaður vera sammála mér um að við þurfum að fara í (Forseti hringir.) til að öðlast einhverja sátt um ferlið.