144. löggjafarþing — 110. fundur, 21. maí 2015.
Varamenn taka þingsæti.
Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Framsóknarflokksins um að Ásmundur Einar Daðason, 3. þm. Norðvest., geti ekki sinnt þingmennsku á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi 2. varamaður á lista Framsóknarflokksins í kjördæminu, Anna María Elíasdóttir, en 1. varamaður á lista í kjördæminu situr þegar á þingi.
Anna María Elíasdóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og er hún boðin velkomin til starfa á ný.