144. löggjafarþing — 110. fundur,  21. maí 2015.

rammaáætlun og kjarasamningar.

[10:08]
Horfa

Róbert Marshall (Bf):

Virðulegur forseti. Hér kom í annars ágætum umræðum í gærkvöldi tvennt mjög athyglisvert í ljós sem er vert fyrir okkur að hafa til umhugsunar, sérstaklega þegar við veltum fyrir okkur hvort ástæða sé til þess að hafa þetta mál áfram á dagskrá. Í fyrsta lagi: Þrír kostir sem um er rætt, þ.e. allir kostirnir fyrir utan Hvammsvirkjun, eru í faglegu mati (VigH: Efnisleg umræða.) sem er í gangi núna, þannig að verið er að fjalla um þessa tvo kosti bæði hér og í verkefnisstjórninni. Þar fyrir utan kom í ljós í gær að í nefndaráliti meiri hluta atvinnuveganefndar er ótrúlega meinleg villa þar sem farið er rangt með tölulegar staðreyndir um hvaða virkjunarkostir voru lagðir til af verkefnisstjórn á síðasta kjörtímabili. Það fær mann til þess að velta fyrir sér hvort föruneyti hv. þm. Jóns Gunnarssonar hafi í þessum breytingartillögum byggt (Forseti hringir.) ákvörðun sína á röngum upplýsingum.