144. löggjafarþing — 110. fundur,  21. maí 2015.

rammaáætlun og kjarasamningar.

[10:15]
Horfa

Jón Þór Ólafsson (P):

Herra forseti. Þetta er náttúrlega leiðinleg staða þegar við ættum að vera að ræða um húsnæðistillögur hæstv. ráðherra Eyglóar Harðardóttur. En forsetinn hefur dagskrárvaldið, hann hefur sett á dagskrá mál sem vitað er að minni hlutinn mun ekki samþykkja að klára umræðu um. Þá verða greidd atkvæði um það og þá verður það samþykkt. Þar með er verið að brjóta rammalöggjöf um gerð langtímasáttar og stefnumótunar í orkumálum. Það er ekki gott.

En hvað er gott í þessu máli? Hvað hef ég heyrt gott nýlega? Það var það sem Bjarni Ben., hæstv. ráðherra, sagði nýlega, að hann vilji fá í þjóðaratkvæðagreiðslu samhliða forsetakosningum um að landsmenn geti sjálfir kallað eftir þjóðaratkvæðagreiðslu um mál. Þá mundum við ekki þurfa að standa hérna af því að þá gæti forseti sett eitthvað á dagskrá, minni hlutinn gæti hleypt því í gegn til þjóðarinnar ef hann teldi að þjóðin vildi það, annars stöðvar þjóðin það. Það væri lausn. Það er það sem okkur vantar hérna á Íslandi. Okkur vantar tæki, önnur tæki en málþóf til þess að geta myndað langtímastefnumótun sem þjóðin (Forseti hringir.) vill sjá.

(Forseti (EKG): Forseti vill biðja þingmenn um að nefna aðra þingmenn fullu nafni.)