rammaáætlun og kjarasamningar.
Forseti. Já, enn mótmælum við dagskránni og munum halda því áfram þangað til (Gripið fram í: … tillögu?) henni verður breytt. Ólánstillagan frá meiri hluta atvinnuveganefndar stoppar hér allt. Hún er brot á lögum um rammaáætlun og um leið og hún fer út getum við haldið hér áfram, en þangað til þá verðum við hér. Við verðum hérna. Ég er ekki hrifin af aðferðum eins og þessum, en þetta er eina leiðin sem við höfum. Og við verðum hérna áfram. Ég skora á þá sem fara með stjórn landsins að þeir reyni að — fyrirgefið, virðulegi forseti — hysja upp um sig og koma í veg fyrir að þjóðfélagið stöðvist hér eins og þingið hefur stöðvast. Og þeir ætla líka að stöðva þjóðfélagið eftir tíu daga. Ég skora á ykkur að taka ykkur saman í andlitinu og (Forseti hringir.) taka þessa ólánstillögu hér út. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)