144. löggjafarþing — 110. fundur,  21. maí 2015.

dagskrá næsta fundar.

[10:49]
Horfa

Katrín Júlíusdóttir (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ástæðan fyrir því að við leggjum þessa tillögu fram er sú að nú eru komnir 45 dagar síðan BHM hóf verkföll sem hafa haft gríðarleg áhrif á heilbrigðisþjónustu í landinu. Í næstu viku munu hjúkrunarfræðingar hefja verkföll og eftir tvær vikur verður hér verkfall sem kallað verður fjölmennasta verkfall Íslandssögunnar. Ríkisstjórnin hefur ekkert lagt fram til að reyna að liðka fyrir þessari deilu. Hún hefur engar hugmyndir um það hvernig á að taka á málinu og hún hefur engan áhuga á því að ræða þetta mál við okkur í þingsal. Í staðinn er því haldið fram af forsætisráðherra landsins að ramminn sé lykillinn að lausn þessara deilna og því er haldið fram í þingsal, en það er síðan hrakið af aðilum vinnumarkaðarins. Hefur hæstv. ráðherra áhuga á því að standa hér í pontu og ræða það við okkur? Nei, hann hefur óskað eftir því að gera það ekki. Þetta gengur ekki. (Forseti hringir.) Við þurfum að ræða þessi mál, það stefnir allt hér í óefni, og við bjóðum upp á það með þessari dagskrártillögu.