144. löggjafarþing — 110. fundur,  21. maí 2015.

dagskrá næsta fundar.

[10:52]
Horfa

Svandís Svavarsdóttir (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Þetta var áhugavert. Hæstv. fjármálaráðherra telur að það sé óþarft að greiða atkvæði um eitthvað í dag af því að greidd voru atkvæði um það í gær. (Gripið fram í.) Hann telur líka að hann viti hvernig atkvæðagreiðslan fer. Er þetta svona í ríkisstjórninni þar sem meiri hlutinn ræður að fjármálaráðherrann kemur bara og spáir fyrir um niðurstöðu atkvæðagreiðslu þar sem þingmenn eiga að fara að sannfæringu sinni? (Gripið fram í.) Er það þannig?

Ég geri ráð fyrir því að alþingismenn hafi metið stöðuna að nýju eftir enn einn dag í þessari umræðu og ég vænti þess að einhverjir alþingismenn hafi endurmetið stöðuna frá því í gær og geti jafnvel komist að annarri niðurstöðu en þá um að það sé samfélaginu og Alþingi til góðs að taka þessa umræðu af dagskrá og draga breytingartillöguna til baka. Hér er verið að gefa færi á því og það færi mun verða gefið áfram til að þingmenn stjórnarflokkanna geti litið í eigin barm (Forseti hringir.) og geti jafnvel farið aðrar leiðir en að horfa bara til leiðtoga sinna í því hvernig á að greiða atkvæði hér.