144. löggjafarþing — 110. fundur,  21. maí 2015.

dagskrá næsta fundar.

[10:58]
Horfa

Árni Páll Árnason (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ástæða þessarar atkvæðagreiðslu er sú að það er mikilvægt að gefa stjórnarþingmönnum færi á því að skipta um skoðun frá því í gær. Nú hafa til dæmis hv. þingmenn stjórnarmeirihlutans á landsbyggðinni fengið að vita að í skjóli þessarar umræðu valsar hæstv. menntamálaráðherra um landið og vegur að sjálfstæði skóla vítt og breitt.

Vilja þeir með atkvæði sínu hér styðja við það að þeirri aðför sé haldið áfram? Vilja þeir afnema sjálfstæða skóla í Fjallabyggð, í Vestmannaeyjum, á Húsavík, á norðanverðu Snæfellsnesi, bara svo að nokkur dæmi séu nefnd? Vilja þeir takmarka möguleika fólks í hinum dreifðu byggðum til að afla sér framhaldsmenntunar?

Það er þannig sem hæstv. menntamálaráðherra notar svikalognið, hann vinnur að því þessar mínúturnar og þessar klukkustundirnar. Nú hafa hv. þingmenn stjórnarmeirihlutans möguleika á að stöðva þá aðför með því að taka þetta óyndismál af dagskrá og gefa okkur færi á að ræða það sem raunverulega skiptir máli, alvörumálin í samfélaginu.