144. löggjafarþing — 110. fundur,  21. maí 2015.

dagskrá næsta fundar.

[11:05]
Horfa

Katrín Júlíusdóttir (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Í 45 daga hefur ríkisvaldinu ekki tekist að ná samningum við Félag geislafræðinga, Félag lífeindafræðinga, Félag íslenskra náttúrufræðinga á Landspítala, Ljósmæðrafélag Íslands á Landspítala, Stéttarfélag lögfræðinga hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu og Ljósmæðrafélag Íslands á sjúkrahúsinu á Akureyri.

Í 32 daga hefur ríkisvaldinu ekki tekist að ná samningum við Félag íslenskra náttúrufræðinga á Matvælastofnun, Stéttarfélag háskólamanna á matvæla- og næringarsviði á Matvælastofnun og Dýralæknafélag Íslands.

Í næstu viku munu hjúkrunarfræðingar hefja verkfall, Starfsgreinasambandið mun hefja verkfall og verkföll munu hefjast hjá hópbifreiðafyrirtækjum á hótelum, gisti- og baðstöðum, verkfall í flugafgreiðslu, hjá skipafélögum, í matvöruverslunum, hjá olíufélögum og þann 6. júní mun hefjast ótímabundið verkfall, fjölmennasta verkfall Íslandssögunnar. Og fulltrúar ríkisstjórnarinnar koma hingað upp og lýsa því yfir að þeir hafi engan áhuga á að ræða þetta.

Virðulegi forseti. Þessum mönnum er ekki viðbjargandi. Hvernig ætla menn að takast á við þetta? Þeir vilja ekki ræða þetta hér og þeir takast ekki heldur á við vandann miðað við þá stöðu sem uppi er. (Forseti hringir.) Það ríkir fullkomin ringulreið í samfélaginu og það er fullkomnu getuleysi ríkisstjórnarinnar að þakka.