dagskrá næsta fundar.
Forseti. Einhver hv. þingmaður sagði áðan að þetta væri gömul tillaga sem við værum að greiða atkvæði um. Það er alrangt. Þessi tillaga var fædd í gær og það er ung tillaga. Hún verður kannski orðin gömul á fimmtudaginn kemur eða fimmtudaginn þar á eftir. Þá skal ég fallast á það að hún teljist gömul. En hún verður flutt þangað til ólánstillaga meiri hluta atvinnuveganefndar fer héðan út. Þó að ég verði ein ætla ég að standa hér og mótmæla, og mótmæla og mótmæla, (Gripið fram í.) og þegar virðulegur forseti biður hv. þm. Guðmund Steingrímsson að koma og skýra mál sitt og túlkun sína á rammalöggjöfinni vil ég fá að vera með af því að ég er hjartanlega sammála þeirri túlkun sem þar kemur fram. (Forseti hringir.) Öll önnur meðferð er lögbrot.