um fundarstjórn.
Forseti. Það sem hér þarf að gerast er að draga til baka breytingartillögu meiri hluta atvinnuveganefndar. Þá geta menn haldið áfram og lokið umræðu um tillögu umhverfisráðherra um að flytja Hvammsvirkjun úr biðflokki í nýtingu. Breytingartillögurnar sem meiri hluti atvinnuveganefndar hefur lagt fram eru ótækar. Þær eru algerlega óásættanlegar. (Gripið fram í.)
Ég óska eftir því að fá að útskýra skoðanir mínar án þess að hv. þm. Jón Gunnarsson sé nöldrandi hérna við hliðina á ræðupúltinu. Það er gersamlega óþolandi, og það er ekki bara frammíkall heldur er látlaus niður af nöldrandi tón frá hv. þingmanni, þannig að ég hef ákveðið að ljúka ekki við ræðu mína af því að ég get það ekki fyrir hv. þm. Jóni Gunnarssyni, sem stóð hér í gær yfir þingmönnum úti í sal og hélt áfram að þusa (Forseti hringir.) yfir þeim eftir að hann kom úr ræðustól, og á í samtölum við menn þegar þeir fara úr ræðustólnum. Þetta eru ólíðandi vinnubrögð, (Forseti hringir.) gersamlega óverjandi og óskiljanleg.