um fundarstjórn.
Virðulegi forseti. Ég tel nú að allir sjái það að hér er komið út í algjört óefni og framkoman og hegðun í þingsal hefur tekið út yfir allan þjófabálk. Ég verð að segja fyrir mitt leyti að það nær nýjum hæðum, þessi framkoma, þegar nú er sótt að forseta þingsins sem hefur sýnt alveg ómælda og ótrúlega þolinmæði á forsetastóli þrátt fyrir viðstöðulaus frammíköll og ónot, klið í þingsal og það hvernig dagskrárliðurinn um fundarstjórn forseta hefur verið misnotaður, ekki bara í dag, heldur svo dögum skiptir og jafnvel vikum, að ég tali nú ekki um hvernig þingstörfin hafa verið tafin. Ég held því að menn ættu kannski áður en þeir fara að gera atlögu að forseta þingsins, sem mér sýnist að sé í uppsiglingu, að líta í eigin barm.