um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Þetta er mjög skýrt í áliti hv. þm. Jóns Gunnarssonar sem yfirgefur nú salinn. Hann segir frá því sjálfur í eigin áliti að þegar tillögur komu frá verkefnisstjórn á síðasta kjörtímabili þá voru, í samræmi við ákvæði til bráðabirgða í lögunum, drög að gildandi tillögu til þingsályktunar send til umsagnar sumarið 2011 af hálfu þáverandi iðnaðarráðherra. Það er alveg skýrt í hans eigin áliti að það var farið nákvæmlega að lögum í öllu þessu ferli á síðasta kjörtímabili. Það er ekki verið að gera það núna. Þess vegna er alveg ljóst hvað þarf að gerast hérna til þess að þetta mál fari í áframhaldandi þinglega meðferð og atkvæðagreiðslu. Það þarf að draga löglausar breytingartillögur til baka. Það verður ekki nógsamlega oft sagt hérna.