144. löggjafarþing — 110. fundur,  21. maí 2015.

um fundarstjórn.

[12:46]
Horfa

Valgerður Bjarnadóttir (Sf):

Forseti. Það þarf að draga ólánstillöguna til baka og fagnefndirnar þurfa að fá að klára vinnu sína við þá þrjá kosti sem núna standa eftir, því mér skilst að það eigi að taka eina breytingartillöguna út eða hvort þeir sem flytja hana ætla að fella hana við atkvæðagreiðslu eða draga hana til baka eða eitthvað svona fiff. Eftir standa tvær virkjanir í neðri Þjórsá og Skrokkalda. Ég held ég fari rétt með þetta. Það þarf að klára faglega yfirferð yfir þá kosti áður en lagt er til að þeir séu settir í nýtingarflokk. Ríkisstjórninni er í lófa lagið að biðja verkefnisstjórnina að hraða þeirri vinnu, (Forseti hringir.) leggja peninga í það og koma með þetta þá aftur í haust.