144. löggjafarþing — 110. fundur,  21. maí 2015.

breytingar á framhaldsskólakerfinu.

[13:14]
Horfa

Brynhildur Pétursdóttir (Bf):

Virðulegi forseti. Ég ætla að vera á sömu nótum. Ég er sammála hæstv. menntamálaráðherra í því að mikið má bæta í íslensku skólakerfi. Auðvitað eiga ráðherrar hverju sinni að skoða allar leiðir til þess, en ég er farin að hafa raunverulegar efasemdir um að hæstv. menntamálaráðherra sé rétti maðurinn í verkið, ég verð að segja það. Það stendur ekki steinn yfir steini þegar embættisfærslur hæstv. menntamálaráðherra eru skoðaðar. Það fór allt í uppnám hér við gerð fjárlaganna í fyrra þegar gólfið var tekið undan minni skólunum úti á landi og því var breytt við 2. umr.

Menntamálaráðherra talar um samráð. Ég held að hann sé einn í þessu samráði. Ég er með frétt þar sem vitnað er í Hjalta Jón Sveinsson, formann Skólameistarafélags Íslands og skólameistara VMA, þar sem hann segir, með leyfi forseta:

„Það hefði nú kannski verið eðlilegra að leita til okkar, sem stjórnum þessum skólum, til þess að fá álit okkar á þessu, að við fengjum allavega að viðra þær hugmyndir sem við gætum haft á þessu máli.“

Þessar fréttir komu öllum að óvörum. Ég las um þær í fjölmiðlum. Við þingmenn kjördæmisins og örugglega fleiri höfum fengið póstsendingar frá fólki sem spyr: Hvað er í gangi? Við vitum það ekki. Ég held að fundur hafi verið haldinn fyrir norðan 12. maí. Það birtist í fjölmiðlum 13. maí. 15. maí kemur svo einhver loðmulluleg tilkynning á vef mennta- og menningarmálaráðuneytisins sem útskýrir ekki neitt. Við hljótum að biðja um skýrari svör frá menntamálaráðherra um hvað hann sé að hugsa. Ég veit ekkert hvort það sem við heyrum í fjölmiðlum er rétt, að það eigi að sameina Laugar og VMA, ég sé ekki að þessir skólar eigi endilega mikið sameiginlegt, og svo Menntaskólann á Tröllaskaga, MA og Framhaldsskólann á Húsavík. Þá væri gott að fá skýrt frá hæstv. ráðherra hvað hann ætlast fyrir vegna þess að hér tala menn í allar áttir. Ég get ekki tekið undir það að eitthvert samráð hafi verið haft (Forseti hringir.) miðað við það sem maður les í fréttum.