144. löggjafarþing — 110. fundur,  21. maí 2015.

ósk um fund forseta með þingflokksformönnum.

[14:31]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg):

Herra forseti. Ég kem hér aftur upp og ræði fundarstjórn forseta og það hvernig mál sem við í stjórnarandstöðunni vildum ræða í morgun var ekki veitt brautargengi. Ég vildi að ég gæti sagt að mér liði eins og ég væri í hinum óbærilega léttleika tilverunnar, en því er þveröfugt farið. Það er svo margt sem við þurfum að laga, við sem þjóðþing getum gert betur, og ættum að vera að fjalla um, ekki einungis það sem snýr að kjaramálunum þeirra sem eru núna í verkföllum, það er mikið sem þarf að koma að hjá bæði elli- og örorkulífeyrisþegum. Þetta eru margir þjóðfélagshópar, þrátt fyrir orð hæstv. fjármálaráðherra sem birtust á vef Morgunblaðsins áðan, að það væri svo mikill jöfnuður í samfélaginu og hann væri víða minni. Í ljósi þess hver staðan er í samfélaginu, virðulegi forseti, virðist það ekki vera samdóma álit þeirra sem berjast þar fyrir kjörum sínum.