áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Virðulegi forseti. Ég fagna því að við erum enn á sömu blaðsíðu, ég og hv. þingmaður, það er um að gera. Við erum sammála um að rannsóknirnar eru mikilvægar og góðar. Þess vegna kom mér það svolítið á óvart þegar Veiðimálastofnun kom til okkar í nefndinni og sagði okkur að rammaáætlun 3 hefði ekki boðað þá til fundar, talið að nóg væri komið af gögnum og byggði á þeim gögnum sem höfðu verið unnin fyrir rammaáætlun 2. Samkvæmt upplýsingum þeirra segja starfsmenn Veiðimálastofnunar og sérfræðingarnir þar að hægt væri að rannsaka Þjórsá í 100 ár í viðbót, gera 100 skýrslur og niðurstaðan mundi alltaf verða gagnrýniverð. Þeir telja að það verði ekki rannsakað meira. Við erum sem betur fer sammála um að laxastofninn er mikilvægur og við þurfum að ganga að þessu með varúð. En hver er skoðun hv. þingmann á áliti Veiðimálastofnunar um að þetta sé að fullu rannsakað og hafi (Forseti hringir.) auðvitað komið í ljós við rammaáætlun 3 þar sem ekki var leitað til stofnunarinnar um málið?