áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Virðulegur forseti. Reynsluleysi þingmanna Framsóknarflokksins er nú farið að þvælast heldur mikið fyrir dagskrá fundarins og framvindu þingsins. Svo óvenjulega vill til í þeirri stöðu sem við erum komin í, eins og hv. þm. Róbert Marshall vakti athygli á, kemur ráðherra Framsóknarflokksins hingað inn með fremur einfalt mál sem góð og breið samstaða er um en í stað þess að standa vörð um tillögu síns eigin ráðherra, eins og þingmenn leitast yfirleitt við að gera í fagnefndum og gæta hennar og hjálpa henni í gegnum þingið eins og venja er, þá láta þingmenn Framsóknarflokksins í atvinnuveganefnd leiða sig út í það að bylta málinu með þeim hætti að það er engin leið að fallast á tillöguna sem kom upphaflega frá ráðherra.
Ég held, virðulegur forseti, að það verði að árétta (Forseti hringir.) að þetta verður ekkert lagað öðruvísi en í nefndinni sjálfri. Þess vegna á að fresta (Forseti hringir.) umræðunni og kalla saman nefndina og fara yfir málið á nýjan leik.